KAMEL-KVEMEL BALL Síðasta föstudag hélt nemendafélagið Mímir svokallað Kamel-Kvemel ball, sem er tileiknað karl- og kvennrembufélögum skólans. Var þetta lokað ball og hljómsveitir skólans léku fyrir nemendum,
Það var hljómsveitin Fóstureyðing, sem byrjaði á að hita upp, og síðan tóku mögnuðu DJ-arnir okkar, þeir Hörður Már og Hróðmar við og algjörlega trylltu lýðinn langt fram eftir nóttu !
og ég vek athygli á að myndirnar frá ballinu eru komnar inní myndasafnið !!
"SÍÐAN ÉG SÁ ÞIG FYRST..." Sýningar á árshátíðarleikritinu "Síðan ég sá þig fyrst..." voru í seinustu viku, þriðjudaginn 16. mars. Leikritið var undir stjórn fráfarandi árshátíðarformanns, Eydísar Ingu, en leikritið var frumsamið að leikstóra og leikurum.
ÍÞRÓTTAVAKNINGIN Lokadagur Íþróttavakningar Framhaldsskólanna var síðastliðinn 19 mars og fóru margir frá ML bæði til að keppa og hvetja, en skólinn var að vinna áður en það kom að þessum lokadegi. Því miður náðum við ekki að viðhalda titlinum frá því í fyrra, en við enduðum í 2. sæti á eftir Kvennó.
Á næstu dögum....
BÍÓKVÖLD Skemmtinefndarformennirnir okkar, Héðinn og Steinn Daði ætla að bjóða okkur uppá rosalegt bíókvöld á þriðjudaginn klukkan 20:30 en þeir ætla að sýna í N-stofu brjálaða sálfræðitryllinn Shutter Island ! Hvet alla til að mæta, því þetta er rosaleg mynd! Hún er nr 214 af 250 bestu myndunum skv. IMDB. Umsögn um myndina: "Það er rosalega erfitt að fjalla um Shutter Island án þess að minnast
eitthvað á sýnishorn myndarinnar. Þau eru vægast sagt blekkjandi og
gefa til kynna að hér sé á ferðinni ósköp hefðbundin spennusaga með
hryllingsívafi, þegar í raun er um að ræða sálfræðidrama sem hrærir
saman ráðgátu í Hitchcock-stíl og óvenjulegri karakterstúdíu......Þetta er mynd sem hélt mér föstum við efnið frá upphafi til enda. Hún
er útpæld, óþægileg á réttum stöðum, spennandi, ótrúlega vel unnin og
frábærlega leikin."
oog síðan ætla ég að enda þetta með nokkrum velvöldum myndum af ballinu !
Allar myndirnar frá Árshátíðinni og Dollanum eru komnar inní Myndasafnið ! :D
Einnig verður árshátíðarleikritið "Síðan ég sá þig fyrst..." frumsýnt í N-stofu skólans í kvöld klukkan 20:30 ! Frítt inn fyrir félaga Nemendafélagsins og starfsmenn skólans. Bráðskemmtilegt leikrit hér á ferð.
Lesa meira...3.3.2010 15:42 Dagskrá fyrir Útvarp Benjamín DAGSKRÁIN FYRIR ÚTVARP BENJAMIN ER ÖLL KOMIN INN Á SÍÐUNA HÉR Á VINSTRI HÖND!!!! Lesa meira...3.3.2010 12:47 ÚTVARP BENJAMÍN Útvarp Benjamín er núna farið í gang, en þar spreyta nemendur sig á útvarpsþáttagerð. Hægt er að hlusta á útvarpið á tíðnunum 103,7 og 89,9
það ætti að vera hægt að hlusta á utvarp.ml.is Einnig er hægt að hlusta á útvarpið með því að smella á myndina hérna til vinstri...
BÍÓKVÖLD Bíókvöld verður haldið í N-stofu næsta miðvikudag kl. 20:30 og verður myndin teiknimyndin Cloudy with a Chance of Meatballs, eða Skýjað með kjötbollum á köflum sýnd ! Allir að mæta !
GO-KART KEPPNI
Skráningarblöð hanga ennþá uppi fyrir framhaldsskólakeppnina í Go-karti ! Endilega taka þátt, það eru fullt af verðlaunum í boði fyrir sigurvegarann m.a. utanlandsferð !
ML-TÍMAR Iþróttaformenn okkar hafa núna náð að bæta við einum ML-tíma í viðbót, en nemendur skólans geta núna farið á fimmtudögum í ræktina eða 1/3 af salnum á milli 16:00 - 17:30 ásamt því að venjulegi tíminn á föstudögum lengdist frá 19:00 - 20:30 !
ATH ! Einnig vil ég vekja athygli á atburðadagatalinu hérna hægra megin á síðunni, ef reiturinn er dökk blár, þá þýðir að það sé eitthvað að gerast á þeim degi, og hægt er að ýta á hvern dag fyrir sig og sjá nánari lýsingu.
Það liðna:
FIFA-MÓT Fifa mót var haldið seinasta miðvikudag í N-stofu og voru sigurvegarar mótsins Addi og Jói. Vegna tæknilegra vandamála voru engar myndir teknar af atburðinum.
STJÓRNASKIPTABALLIÐ Stjórnaskiptaballið fór fram þann 23. janúar síðastliðinn og lék Skítamórall fyrir gestum. Skemmtu allir sér mjög vel á ballinu og að sjálfsögðu höguðu allir sér vel. Takk fyrir gott ball !
Í gær, 20. janúar 2010 var kosin ný stjórn á aðalfundi Nemendafélagsins Mímis.
Kosningarnar voru æsispennandi og þá sérstaklega í Stallarann, formann
nemendafélgasins, en þar fór Sævar Ingi Sigurjónsson með sigur gegn Örnu
Vilhjálmsdóttur. Eftir að ný stjórn var mynduð skellti gamla stjórnin sér í
óvissuferð og koma þau aftur á Stjórnaskiptaballinu á laugardaginn, og nýja
stjórnin tók strax við störfum.
Gamla stjórnin er búin að standa sig alveg frábærla vel og vonar nýja stjórnin
að við eigum eftir að fylgja eftir því góða starfi sem þau hafa sinnt og óskum
þeim góðrar skemmtunnar í óvissuferðinni.
Nýkosin stjórn Mímis:
Stallari : Sævar Ingi Sigurjónsson Varastallari : Sigurður Skúli Benediktsson Gjaldkeri : Guðrún Linda Sveinsdóttir Skólaráðsfulltrúar : Helga Hrönn Karlsdóttir og Brynja Sóley
Plaggenborg Skemmtinefndarformenn : Steinn Daði Gíslason og Héðinn Hauksson Íþróttaformenn : Hálfdán Helgi Hálfdánarson og Bergþór Ingi Sigurðsson Vef- og markaðsfulltrúi : Valdís Hrönn Sigmarsdóttir Ritnefndarformaður : Alda Magnúsdóttir Árshátíðarformaður : Jóhanna Linda Jóhannesdóttir Tómstundaformaður : Ægir Freyr Hallgrímsson
Stjórnaskiptaballið
Stjórnaskiptaballið verður haldið næstkomandi laugardag, þann 23. Janúar og
þá verður engin önnur en magnaða sveitaballahljómsveitin Skítamórall !
Verð á
ballið er aðeins litlar 2000 kr fyrir félagsmenn en 2500 fyrir gesti!
Skítamórall byrjar að spila uppúr 12 en hljómsveitin Fóstureyðing, sem
samanstendur af meðlimum og fyrrverandi meðlimum skólans, mun hita upp fyrir
Skímó.
Þetta verður rosalegt kvöld sem þú vilt ekki missa af !
ATH! Gestalistinn lokar um kvöldmatarleitið á föstudaginn
22. Janúar, þannig að muniði að skrá gestina ykkar fyrir þann tíma, annars mega
þau ekki fara á ballið og heldur ekki vera á vistinni ! Hámark 4 á gestalista, aðeins 2 mega samt gista.
Til að setja einhvern á gestalista hjá ykkur þá hafiði samband við Héðinn eða Stein Daða, þeir verða með listann í hádegismat og kvöldmat á morgun eða í síma:
Nú er komið að því sem allir hafa beðið eftir, stjórnaskipti 2010.
Það kom í ljós síðasta föstudag hvaða nemendur ætla að bjóða sig fram til stjórnar nemendafélagsins.
Annað kvöld klukkan 21:00 er framboðsfundur þar sem frambjóðendur stíga á stokk og lesa ræður sínar. Svo verða þeir spurðir spurninga sem þeir svara með besta móti.
Svo á miðvikudaginn fer svo kosningin sjálf fram. Hver sá nemandi sem er í nemendafélaginu getur mætt á kjörstað (N-stofu) í öllum frímínútum, það er að segja fyrir hádegi og kosið hvaða einstaklinga hann vill sjá í stjórn 2010-2011.
Aðalfundur Mímis verður svo haldin miðvikudaginn 20. janúar í N-stofu klukkan 20:30 og er dagskráin eftirfarandi:
Dagskrá fundar:
·Fundargerð síðasta aðalfundar lesin og borin upp til samþykktar.
·Skýrsla fráfarandi stjórnar.
·Endurskoðaðir reikningar lagðir fram, skýrðir og bornir upp til samþykktar.
·Lagabreytingar, ef tillögur í þá átt liggja fyrir.
·Talning atkvæða.
·Önnur mál.
·Skræða lesin upp.
Auðvitað eiga allir að mæta á báða fundina og verða vitni að eina stærsta viðburði nemendafélagsins
Fyrir þá sem ekki vita þá hefst skólinn 5. janúar 2010. Bókalistinn fyrir þá önn er komin á netið á ml.is eða hér. Endilega skoða listann og kíkið einnig á skiptibókamarkað Mímis sem er á Mímir facebookinu. Mjög sniðug aðferð til að losa sig við bækur og kaupa á hagstæðu verði frá nemendum skólans og fyrrverandi nemendum skólans.
Að öðru máli, þá er undirbúningur fyrir leikriti Mímis hafinn. Árshátíðarformaður hefur útvegað handrit en allt annað kemur í ljós á næstu önn. Þeir sem hafa áhuga að taka þátt í leikritinu senda póst á Mímir facebookinu. Svo verður haldinn fundur og sett í hlutverk í byrjun annarinnar.
Lesa meira...14.12.2009 16:43 Myndbönd Blítt og Létt Loksins loksins eru myndböndin af Blítt og Létt komin á netið, en vegna annríkis og snúrleysis hefur það ekki verið hægt fyrr en í dag. HÉR er hægt að sjá öll lögin en fyrir neðan kemur sigurlagið.
Jólabingó Mímis Nú er prófavikan komin í gang og allir nemendur skólans sitja sveittir yfir námsbókunum. Enda ekkert annað í boði þegar prófin skella á. En við hjá Nemendafélaginu Mímir viljum sjá til þess að nemendur okkar skemmti sér vel í svona erfiðisvinnu og ætlum því að halda Jólabingó í mötuneyti skólans hér í kvöld. Allir eru hvattir til að mæta enda frábærir vinningar í boði.
Furðuleikar Um daginn var haldið furðuleikamót þar sem nemendur skólans kepptu í hinum ýmsu furðulegu leikjum og þrautum eins og garnaflækju og blindrabolta. Þetta var alveg tilvalin leið til að sletta aðeins úr klaufunum rétt fyrir prófin.
Liltu jól Seinasta mánudag voru Litlu jól Menntaskólans að Laugarvatni. Þar komu saman nemendur skólans og hlustuðu á jólasögur frá skólameistaranum og drukku kakó í rólegheitunum.
Lesa meira...10.11.2009 18:52 Blítt&Létt og Náttfataball
Blítt & Létt var haldið síðastliðinn fimmtudag. En þær Kolfinna og Jóhanna Linda stóðu upp sem sigurvegarar með lagið ,,Tiger Mountain Peasent Song" með Fleet Foxes. Annað sæti hlutu sönghópurinn F.B.L.G.K. , eða Hörður Már, Hróðmar, Jóhanna Ýr og Snæbjörg, þau tóku ,,Marble House" með The Knife. Svo hreppti Óskar bronsið með laginu Colorful - The Verve. Þær Guðrún Margrét og Bára fengu svo sérstök verðlaun fyrir skemmtilegasta atriðið, en þær tóku ásamt 6 bakröddum ,,You're the one that I want úr myndinni "Grease.
Jóhanna Linda og Kolfinna, sigurvegarar Blítt & Létt 2009
Sönghópurinn F.B.L.G.K.
Föstudaginn eftir það var svo rækilega tekið á því og skelltu nemendur skólans sér á náttfataball. Að þessu sinni var þetta lokað náttfataball þannig þetta var einungis fyrir nemendur skólans.
Eins og margir vita þá verður vikan 2-6 nóvember hreint út sagt frábær!
Í fyrsta lagi er leynivinavika. Þá draga strákarnir stelpu og öfugt. Sá sem maður dregur á maður að vera geðveikt góður við. Gefa honum/henni nammi, snakk, sæt bréf o.s.frv. Um að gera að vera frumlegur í þessu :D Svoleiðis er það alla þessa viku. Svo á náttfataballinu segir þú leynivini þínum frá því hver þú ert
Þóra að tilkynna Örvari að hún sé leynivinur hans!
Í öðru lagi er Blítt&Létt og ML dagurinn á fimmtudaginn. Eftir hádegi koma nemendur úr grunnskólum suðurlands til að skoða þennan frábæra skóla. Grunnskólarnir keppa bæði í körfubolta og tafli. Síðan taka þau rúnt um skólann og vistirnar. Um kvöldið er svo Blítt&Létt, undankeppni ML fyrir Söngkeppni framhaldsskólanna.
Arnar Kári, sigurvegari Blítt&Létt 2008
Í þriðja og seinasta lagi er svo náttfataball og náttfatadagur á föstudaginn. Allir nemendur skólans mæta því í náttfötum í skólann. Ballið er svo að þessu sinni einungis fyrir nemendur skólans. Þetta er því lokað náttfataball!
Úrslitin úr ML-tröllinu eru nánast komin í ljós, en Salbjörg Ragna vann kvennahlutann, ML-Skessan, og óskum við henni innilega til hamingju með það.
ML Skessan, Salbjörg Ragna
En karlahlutinn er enn óljós. Árni 4 bekk og Hreinn Heiðar eru jafnir eins og er. En í hádeginum á miðvikudaginn fara þeir tveir í sjómann sem mun útkljá hver er ML-Tröll Menntaskólans að Laugarvatni 2009.
Fimmtudaginn 24. september var 1. bekkur með stórfenglegt skemmtikvöld. Atriðin voru ýmist söngatriði, leikur eða uppistand. Kynnar kvöldsins voru Aðalsteinn og Halldóróthea og voru þau skemmtilega klædd í tilefni þess. En Helgi Jónsson var án efa maður kvöldsins, með frábært uppistand og skemmtileg söngatriði.
Kynnar kvöldsins
Júlíus, Daníel og Helgi að taka Killing in the name of
Á döfinni
Ljósmyndakeppnin er ennþá í gangi. Myndir skuli sendast til Malínar, ritnefndarformanns á: malla_912@hotmail.com. Myndir sigurvegarans munu svo birtast í Mímisbrunni.
Í þessari viku verður svo körfuboltamót og einnig ML-Tröllið! Þar sem ýmsir nemendur skólans keppa hver er sterkastur.
Svo verð ég því miður að hryggja ykkur með að myndirnar misheppnuðust hræðilega í gær. Vegna bæði myrkurs og rigningu réði þessi elskulega nemendafélagsmyndavél ekki við þetta. En í staðinn tók ég upp nokkur myndbrot sem ættu að bæta aðeins upp fyrir þetta.
Smellið bara á "lesa meira" og þar eru nokkur youtube myndbönd.
Fótboltamót verður á miðvikudaginn og fimmtudaginn á íþróttavellinum. Mæta skal stundvísilega 19:00 !! Svo munið að það þarf alltaf að vera ein stelpa inná vellinum.
Fyrsta kaffihúsakvöld 4. bekkjar var haldið þriðjudaginn 8. september. Í boði voru ómótstæðileg góðgæti ásamt frábærum skemmtiatriðum. Haldin var fræðandi og skemmtilegt "Kaffiquiz" í anda Pubquiz. Flokkarnir í því voru ML, Vísindi, Söngleikir og Félagslíf. Svo var ein Kaffispurning þar sem sér verðlaun voru veitt.
En sigurvegari Kaffiquiz var enginn annar en Garðar Aron Guðbrandsson, fyrrverandi ML-ingur og skærasta gull þjóðarinnar.
Garðar Aron ásamt höfundum Kaffiquiz
Svo voru sigurvegarar Kaffispurningarinnar Hilmar Braga, Valgarður og Aðalbjörg, kennarar í ML! Unnu þau bæði með réttu svari og skemmtilegri aukagetu.
Myndir komnar frá trylltasta balli í sögu Laugarvatns. Ultra Mega-tecnobandið Stefán gerðu allt vitlaust á litla sviðinu í N-stofu! Svo voru DJ Game boy og Beat Kommandah ekki langt frá því að rífa þakið af húsinu með tónlist sem George Bush myndi ekki neita því að dansa við. En Snæbjörg, Kiddi og Hálfdán fá klárlega verðlaun fyrir bestu dansa kvöldsins. Þau voru svo heit að reykur kom útúr þeim.
Svo eru auðvitað myndirnar frá vikunni löngu komnar inn.
Bíðið spennt eftir Mímingi sem kemur með heitasta slúðrið...
Busaball ML verður föstudaginn 28 ágúst! Eins og alltaf þá er gestalisti og það er líka gistilisti þetta ball. Gestalista lokar klukkan 13:00 á föstudeginum. Engir sénsar gefnir eftir það. Endilega láta skrá sig sem fyrst.
Ellefu styrkir verða veittir úr
Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta Háskóla Íslands 16. júní
nk. Um er að ræða styrki til nemenda sem náð hafa afburðaárangri
á stúdentsprófi og innritast í Háskóla Íslands. Hver styrkur
nemur 300.000 krónum auk niðurfellingar skráningargjalds í
Háskólann, sem er 45.000 krónur.
Þetta er í annað sinn sem styrkir
eru veittir úr Afreks- og hvatningarsjóði stúdenta við Háskóla
Íslands en sjóðurinn var stofnaður í fyrra. Styrkirnir í ár
eru veittir með stuðningi Símans og Happdrættis Háskóla
Íslands. Umsóknarfrestur um styrki úr Afreks- og hvatningarsjóðnum
fyrir þetta ár rennur út 5. júní nk.
Stjórn sjóðsins velur styrkhafana en
við valið er einkum tekið mið af framúrskarandi námsárangri á
stúdentsprófi. Einnig er horft til virkni í félagsstörfum og
árangurs stúdenta á öðrum sviðum s.s. í listum og íþróttum.
Háskóli Íslands er stærsti og elsti
háskóli landsins og jafnframt sá skóli sem býður upp á mesta
fjölbreytni í námsvali. Háskóli Íslands menntar Íslendinga
til að takast á við krefjandi störf í framtíðinni og stuðlar
þannig að bættum lífskjörum á Íslandi. Í Háskólanum eru
stúdentar hvattir til að víkka sjóndeildarhringinn og nýta
hæfileika sína til fulls.
Helstu upplýsingar um sjóðinn,
umsóknarfrest o.fl. er að finna á heimasíðu Háskóla Íslands,
www.hi.is.
Frekari upplýsingar um styrki og
styrkveitingar veitir G.Ingibjörg Arnardóttir, starfsmaður
vísindasviðs Háskóla Íslands, gia@hi.is
Loksins loksins! Við erum formlega búin að vinna Íþróttavakningu framhaldsskólanna. Sem kemur náttúrulega engum á óvart því við erum best. Svo einfalt er það.
Núna er það bara að rúsa þessum prófum,
au revoir, auf Wiedersehen og sjáumst hress á næstu önn! :D
Góð þáttaka á Dollanum hjálpaði mikið til að sigra Íþróttavakninguna
Göngutúrinn góði.. fólk sem fór á sannarlega hrós skilið! Enda fengu þau ís
Elskulegur fjórði bekkur okkar er nú brátt að fara frá okkur. En þau kvöddu okkur svo sannarlega með stæl, með frábæru kennaragríni og skemmtilegum og frumlegum dimmition búning! Þetta kom öllum mjög skemmtilega á óvart og nú hafa þau dansað og dillað sér eins og enginn sér morgundagurinn.
Til að sýna hversu gaman þetta var, eru komnar myndir frá bæði kennaragríninu og smá af dimmiteringunni.
Arnar okkar vann ekki, en stóð sig samt sem áður alveg frábærlega vel. Svo heppnaðist ferðin okkar á Akureyri alveg ljómandi vel og skemmtu allir sér alveg konunglega.
Svo er myndband með Arnari og félögum komið á youtube.com
Okkar maður, Arnar Kári Guðjónsson mun keppa í Söngkeppni Framhaldsskólanna 2009 annað kvöld og að sjálfsögðu förum við alla leið á Akureyri til að styðja kallinn. Lagið sem hann tekur er ,,Þú fórst" eða á ensku ,,Like a Drug" með Desert Sessions. En hann tók á Blítt og Létt ,,I Wanna make it Wit Chu" með sömu hljómsveit. Með honum í för eru engar aðrar en hinar undurfögru Jóhanna Ýr Bjarnadóttir, Silja Runólfsdóttir og Regína Lilja Magnúsdóttir en þær ljá laginu hans raddir sínar með fögrum úú-um og óó-um.
Við leggjum af stað héðan frá Laugarvatni klukkan 13:00 stundvíslega á morgun, föstudag og það verður að borga áður en farið er í rútuna, Erna gjaldkeri vor verður á staðnum með posa en fyrir þá sem leiðinlegt þykir að bíða er best að koma með pening.
ATH! Þeir sem hafa ekki enn náð 18 ára aldri verða að láta foreldra hringja í Pálma fyrir klukkan 10 á morgun, föstudag til að fá leyfi fyrir ferðinni.
Ykkar þokkafullu og yndisfríðu, Auður Gróa, vef & markaðsfulltrúi og Eydís Inga, árshátíðarformaður
Borgarfundur um menntamál Stóra Sal í Háskólabíó Fimmtudaginn 16. apríl Stundvíslega kl. 20:00 Fundastjóri: Sigurjón M. Egilsson Framsögufólk Atvinnulífið: Þórólfur Árnason, forstjóri Skyrr Háskólasamfélagið: Sigurður Guðmundsson, forseti Heilbrigðisvísindasviðs Stútent: Saga Garðarsdóttir, Listaháskólanum Framhaldsskólar: Hreiðar Már Árnason, stjórn SÍF Setjum menntamálin á dagskrá
Innanskólamót í Lazertag í Menntaskólanum að Laugarvatni. Verður haldið innan veggja skólans að kvöldi 16. apríl 2009 kl 19:00 og keppt er fram á nótt. Þátttökugjald er 2.900- kr. Keppt verður í 12 manna liðum og sigurliðið úr hverjum skóla kemst í úrslitakeppnina sem verður haldin á leynilegum stað í risabyggingu á Reykavíkursvæðinu. Skráning er hjá Árna Ben. í síma 849-4999 eða í gengum e-mailið hans arnibe@ml.is
Verðlaunapeningar fyrir skólameistara hvers skóla Viðurkenning veitt fyrir flottustu búninga hvers skóla Vegleg verðlaun fyrir flottustu ljósmyndina úr keppninni Vegleg verðlaun fyrir flottasta 30 sek myndbandið úr keppninni Framhaldsskólameistararnir hljóta allir ipod shuffle spilara frá Apple
Eins og er, þá erum við í fyrsta sæti í Íþróttavakningu framhaldskólanna. Hér er urlið þar sem þið getið séð stöðu annara skóla. ---> http://www.menntamalaraduneyti.is/menntamal/framhaldsskolar/vakning/
Muna svo að mæta í þriðju og síðustu keppnina svo við vinnum þetta alveg örugglega!!! :D
Menntaksólinn að Laugarvatni er í öðru sæti í Íþróttavakningu Framhaldskólanna. Við eigum reyndar eftir að setja inn Dollann, þannig við gætum farið upp í fyrsta sæti! Svo væri lang best ef við myndum vera dugleg í þriðju og síðustu þrautinni svo við rústum alveg örugglega þessari keppni. Koma svo!!!!
Fimmtudaginn 12 febrúar verður farið í klikkað skemmtilega leikhúsferð. Lagt verður af stað frá skólanum kl 4 og áætlað er að koma á Pizza Hut um hálf 6 leitið. Svo þegar allir hafa gert sig pakksadda eftir dásamlegt pizzuhlaðborð er ferðinni heitið í Borgarleikhúsið. Þar verður sýnt bráðfyndna leikritið Fló á skinni. Þegar því er lokið er ferðinni haldið á Laugarvatn.
Ný
stjórn Mímis var kjörin á aðalfundi þann 28 janúar. Mikil barátta var
um hin ýmsu embætti enda margir efnilegir í framboði. Eftir fundinn fór
gamla stjórnin í æsispennandi óvissuferð og nýja stjórnin fór strax í
sín fyrstu verk.
En erfitt verður að feta í fótspor þessarar
glæsilegu fyrrum stjórnar og vil ég fyrir hönd nýju stjórnarinnar,
þakka þeim fyrir frábæra starfsemi og dugnað.
Svo fyrir þá sem ekki vita þá eru eftirfarandi í nýju stjórninni
Stallari: Árni Benónýsson Varastallari: Þóra Húgósdóttir Gjaldkeri: Erna Jónsdóttir Skólaráðsfulltrúar: Herdís Anna Magnúsdóttir og Arna Vilhjálmsdóttir Skemmtinefndarformenn: Margrét Kristjánsdóttir og Sævar Ingi Sigurjónsson Íþróttaformenn: Sigurður Skúli Benediktsson og Daníel Guðmundur Daníelsson Vef og Markaðsfulltrúi: Auður Gróa Valdimarsdóttir Ritnefndarformaður: Hrafnhildur Ása Karlsdóttir Árshátíðarformaður: Eydís Inga Valsdóttir Tómstundaformaður: Jón Hjalti Eiríksson
En myndir frá Stjórnaskiptaballinu koma líklegast á síðuna á morgun.
-Gróa
Lesa meira...27.1.2009 20:08 Stjórnarskipti 2009 Þá er komið að því, stjórnarskiptin 2009.
Það kom í ljós síðasta fimmtudag hvaða nemendur ætla að bjóða sig fram til stjórnar nemendafélagsins. Þetta er stór og góður hópur í ár og tel ég að allir þessir frambjóðendur eiga góða möguleika í þessari baráttu
Í kvöld klukkan 21:00 er framboðsfundur þar sem frambjóðendur stíga á stokk og lesa ræður sínar. Svo verða þeir spurðir spurninga sem þeir svara með besta móti.
Á morgun, miðvikudag fer svo kosningin sjálf fram. Hver sá nemandi sem er í nemendafélaginu getur mætt á kjörstað(N-stofa) í öllum frímínútum á morgun, það er að segja fyrir hádegi og kosið hvaða einstaklinga hann vill sjá í stjórn 2009-2010.
Aðalfundur Mímis verður svo haldin annað kvöld(miðvikudaginn 28. janúar) í N-stofu klukkan 20:30 og er dagskráin eftirfarandi: Dagskrá
fundar:
·Fundargerð síðasta
aðalfundar lesin og borin upp til samþykktar.
·Skýrsla fráfarandi
stjórnar.
·Endurskoðaðir reikningar
lagðir fram, skýrðir og bornir upp til samþykktar.
·Lagabreytingar, ef
tillögur í þá átt liggja fyrir.
·Talning atkvæða.
·Önnur mál.
·Skræða lesin upp.
Viljum við sjá sem flesta nemendur á framboðsfundinum og að sjálfsögðu á aðalfuninum líka.
Ný stjórn verður kjörin um klukkan 23:00 annað kvöld.
Lesa meira...3.1.2009 18:09 Nýtt ár gengið í garð ! Kæru nemendur
Fyrir hönd nemendafélagsins Mímis vil ég óska ykkur gleðilegs nýs árs og þökk fyrir það gamla. Kennsla hefst að nýju mánudaginn 5. jan næstkomandi og um leið hefst starf Mímis að fullu. Nú fer senn að líða að stjórnarskiptum hjá nemendafélaginu og vil ég minna nemendur á að fara að hugleiða hvort þeir hafi hug á að bjóða sig fram til stjórnar 2009-2010. Aðalfundur Mímis verður svo haldin miðvikudaginn 28. janúar og lýkur honum svo með formlegum stjórnarskiptum.
Nemendafélagið Mímir mun vera með Bingó næstkomandi miðvikudag, þann 10.desember. Byrjað verður að lesa upp tölur klukkan 20:00 og er fólk beðið að mæta stundvíslega en salurinn opnar 19:30. Bingóið verður haldið í matsal Menntaskólans að Laugarvatni.
Margir frábærir vinningar eru í boði svo það er til góðs að vinna.
-800 krónur inn og eitt spjald fylgir
-Öll spöld eftir það kosta 500 krónur og verður verðið lækkað í hléi niður í 300 krónur.
Aðalvinningar kvöldsins eru símar og hótelgistingar.
Lesa meira...21.11.2008 15:26 Dr. Spock á Laugarvatni Dr. Spock í samstarfi við Mími Dr. Spock ásamt
Agent Fresco og Slugsætla að heimsækja okkur næstkomandi fimmtudag(27.nóv) og vera með tónleika, þeir verða haldnir í N-stofu í húsakynnum Menntaskólans. Dr. Spock er að túra út um allt land og heitir þessi túr ,,Skítatúrinn" en þeir koma við á morgun stöðum á mjög stuttum tíma.
Húsið verður opnað kl. 20:00
500 krónur inn fyrir nemendafélagsmenn
800 krónur fyrir aðra
Allir velkomnir
Spock diskar og bolir til sölu Lesa meira...14.11.2008 14:35 Úrslit Blítt & Létt 2008 Þá er söngkeppninni Blítt & Létt þetta árið lokið. Mikil ánægja var meðal gesta eftir keppnina og fóru allir sælir heim.
Glæsileg umgjörð var í kring um keppnina og heppnaðist hún mjög vel. 21 atriði voru skráð til keppni og vil ég þakka öllum þeim sem tóku þátt og gerðu keppnina svona glæsilega
Dómnefndina í ár skipuðu þau: Rúnar Júlíusson-Tónlistarfrömuður Eygló Scheving Sigurðardóttir-Söngkona í Vicky Pollard Jóel Fr Jónsson-Tónlistamaður
Sigurvegari í Blítt & Létt var Arnar Kári Guðjónsson sem flutti lagið ,,I wanna make it wit chu" með Desert Sessions. Regína Lilja Magnúsdóttir söng svo með honum
Í öðru sæti var Eydís Inga Valsdóttir og flutti hún ,,Houses of the holy" Led Zeppelin.
Í þriðja sæti urðu svo Hákon, Arnar Kári, Hróðmar og Steinn Daði og fluttu þeir lagið ,,Breed the lies" með Changer.
Sigurvegari Vodafone sms kosningarinar var Hjörtur Freyr Sæland með lagið ,,Fix You" með Coldplay.
Myndbönd af efstu 3 sætunum er hægt að sjá með að smella á Lesa Meira og eru þau þar neðst.
-Þórður-
Lesa meira...29.10.2008 19:19 Blítt & Létt 2008 Blítt & Létt 2008 Söngkeppnin Blítt & Létt verður haldið í íþróttahúsinu á Laugarvatni fimmtudaginn 13.nóvember. Þann sama dag er kynningardagur Menntaskólans að Laugarvatni. 21 atriði er skráð til þáttöku svo að vel verður haldið á spöðunum þetta kvöld og mun keppnin renna eins og ljúfar lummur niður gula rennibraut
-Keppnin byrjar stundvíslega klukkan 18:00 og úrslit verða svo kynnt upp úr klukkan 20:30 og sigurvegari fær farandbikarinn afhentan, Hljóðkútinn.
-Keppendur þurfa að skrá sig fyrir föstudaginn 31. október
-Vegleg verðlaun í boði
-Hin landsþekkta hljómsveit BUFF mun spila undir hjá keppendum og sjá um að halda okkur í stuði
-Sigurvegari keppninnar mun svo keppa fyrir hönd skólans í Sönkeppni Framhaldsskólanna 2009.
Verð: -Félagsmenn: 1500 kr -Ófélagsmenn: 1800 kr
-Þórður-
Lesa meira...26.10.2008 13:16 Laugar Eins og margir hafa tekið eftir þá verður ekkert af Laugaferðinni í ár vegna þátttöku. Ekki náðist tilsettur fjöldi þannig að ekkert verður af ferðinni í ár.
Þórður
Lesa meira...6.10.2008 10:41 Skólaheimsókn á Laugar Núna er komið að okkur að heimsækja frammhaldsskólann á Laugum. Þetta verður mega Road Trip
Föstudaginn 31. október verður skólaheimsóknin árlega. Í þetta skiptið er komið að okkur að fara á Laugar. 31. október til 2. nóvembers.
Skemmtinefndaformenn munu kynna ferðina fyrir nemendum á næstu dögum og þá skrá nemendur sig á bindandi lista.
-Þórður-
Lesa meira...25.9.2008 09:07 Paintball/skil á umsóknum Síðasti séns til að skila umsóknum fyrir Paintball mótið sem er haldið fimmtudaginn 2. október er á mánudaginn 29. september.
Munið að þeir nemendur sem ekki hafa náð 18 ára aldri þurfa að vera með skriflegt leyfi.
Umskóknareyðublöð liggja á póstborði
-Þórður-
Lesa meira...25.9.2008 00:30 Samstarf Vodafone og MÍMIS
Nú er Mímir í frábæru samstarfi við Vodafone.
Við viljum minna fólk á síðuna www.mittfrelsi.is
sem er upplýsingrasíða fyrir nemendur ML.
Á
mittfrelsi.is getur þú flutt símanúmerið þitt yfir til Vodafone og
styrkt sjálfan þin um 2.000 kr og nemendafélagið þitt um 1.000 kr. Þú
heldur að sjálfsögðu sama símanúmerið þegar þú ert kominn til Vodafone.
Einnig viljum við láta ykkur vita að því að þeir sem eru hjá Vodafone geta sótt sér live! stillingar á
www.mittfrelsi.is FRÍKEYPIS!
Í live! er hægt að nálgast
upplýsingar frá nemendafélaginu beint í símanum þínum og kostar það þig
ekki neitt! Aðrar síður sem hægt er að skoða frítt eru til dæmis
fréttir af
gras.is og
vísir.is. Við hvetjum alla til að kíkja á
www.mittfrelsi.is og ná sér í live! stillingarnar.
Lesa meira...25.9.2008 00:22 Bæjarferð Bæjarferðin gekk mjög vel og komið var heim rétt um miðnætti.
Það eru komnar inn myndir af ferðinni, svo endilega skoðið þær.
-Binni- (óþolandi maðurinn með flassið í ferðinni)
Á morgun miðvikudag verður farið í bæjarferð. Farið verður út að borða á Pizza Hut og þaðan liggur leiðin svo í Smárabíó.
Rúturnar leggja af stað frá skólanum stundvíslega klukkan 16:48
Þeir nemendur sem ekki hafa greitt nemendafélagsgjöldin hafa ekki rétt til að koma með í þessa ferð. Hægt verður að greiða gjöldin hjá gjaldkera á morgun eða leggja inn á reikning nemendafélagsins.
Verð: 2000 krónur sem fara á mötuneytisreikning en sá kostnaður er fyrir rútunni og pizzunni. Þið þurfið sjálf að borga ykkur inn í bíóið.
Listarnir sem gengu í bekkina voru bindandi þannig að þeir sem skráðu sig þurfa að borga ferðin þrátt fyrir að þeir mæti ekki.
-Þórður Sig-
Lesa meira...11.9.2008 13:57 Bekkjarmót i Fótbolta Óvænt úrslit Óvænt úrslit urðu i bekkjarmóti þar sem hinn efnilegi fyrstibekkur vann mótið eftir mikla heppni...
Lesa meira...11.9.2008 13:05 Paintball Framhaldsskólamótið í Paintball verður haldið fimmtudaginn 2. október.
Þetta er innanskólamót þar sem að lið frá ML keppa innbyrðis.
Reglur eru á veggjum skólans og á vistunm og umsóknarblöð liggja á póstborðinu.
Það kostar 2900 krónur að taka þátt og er þá allt innifalið nema að koma sér á staðinn.
Þeir sem vinna þetta mót fara svo í úrslitakeppnina sem verður haldin seinna í október.
Skila á umsóknum til Þórðar.
Allir að taka þátt ;)
-Þórður-
Lesa meira...31.8.2008 22:49 Undirritun samnings Í lok seinasta skólaárs var nýr samningur við Vodafone kynntur og leyst stjórn Mímis mjög vel á og var þessi samningur svo undirritaður ekki fyrir löngu. Vodafone hefur upp á margt að bjóða og verður nemendum boðið upp á kynningu á öllu sem Vodafone hefur upp á að bjóða sem er margt. Hvetjum við alla nemendur skólans til að skoða það sem þau hjá Vodafone hafa að bjóða.
-Þórður-
28.8.2008 12:47 Löng bið á enda..... Jæja, þá eru allir nemendur mættir aftur í skólann. Mikill spenningur er í krökkum, enda er spennandi vika framundan. BUSAVIKAN. Skólinn var settur í gær og eftir það hófst kennsla. Í 3. tíma var svokölluð stigakynning og kynntu nýnemarnir sig þar.
Mikil gleði er svo frammundan í dag en hefst Busauppboðið í dag klukkan 14.00. Í kvöld klukkan 20.00 er svo stjórnarkynningin.
Enda öll herlegheitin svo með DAUÐAGÖNGUNNI á morgun,föstudag.
Busaballið er svo annað kvöld en þar verður eflaust mikið fjör þar.
Hljómsveitin Bjórbandið mun leika fyrir dansi eitthvað framm eftir nóttu.
Gestalistinn er núna alla matartíma í mötuneytinu og skrá nemendur gesti sína þar.
Ballið:
- Bjórbandið að spila, uhh já..
- 2000 kr. fyrir nemendafélagsmenn
- 2500 kr. fyrir aðra
- 2 gestir á næturlista. Og svo 2 aðrir sem færu þá heim.
- Geðveikt gaman
-Þórður-
Lesa meira...14.8.2008 21:38 Nemendafélagsgjöld Væntanleg innheimta Nemendafélagsgjöld fyrir næsta skólaár eru 8.000 krónur. (8.290 með innheimtukostnaði). Greiðsluseðlar verða sendir út til þeirra sem ekki hafa þá greitt með öðrum leiðum og þarmeð sparað sér 290 króna innheimtukostnað. Aðrar leiðir má finna hér neðar. Lesa meira...8.8.2008 20:55 Styttist í þetta... Jæja kæru samnemendur... nú styttist óðfluga í að skólinn byrji, og eru margir sem ég tala við farnir að hlakka til að komast aftur á Vatnið.
nú eru aðeins 18 dagar í að eldri nemendur mæti á Laugarvatn (þeas. 25. ágúst) og þá hefst hin stórskemmtilega busavika.
Binni
Lesa meira...14.7.2008 20:09 Samningur undirritaður Nemendafélagið Mímir hefur undanfarin ár verið í samstarfi við símafyritækið Vodafone. Fór ég, Þórður, á fund með stjórnendum Vodafone og eftir hann var svo ákveðið að samstarfi Mímis og Vodafone yrði haldið áfram.
Verður svo nýr samningur undirritaður von bráðar fyrir skólaárið 2008-2009.
Þórður
Lesa meira...3.7.2008 21:28 Myndir komnar inn! Jæja... nú loksins eru komnar myndir inn af seinasta vetri.
Ég reyni að bæta við fleiri myndum fljótlega, þegar ég hef tíma. búinn að sitja sveittur við tölvuna að gera myndirnar hæfar fyrir síðuna.
þangað til næst.
Auf Viedersehen!
-Binni- 2.7.2008 19:45 Komin í lag... Þá er heimasíðan komin í lag. Nú verður farið í það að setja myndir inn á síðuna og gera hanna flotta. Atburðir á vegum nemendafélagsins verða skráðir í atburðatagatalið.
Gleðilegt sumar og sjáumst síðar...
Þórður S.
Lesa meira...27.5.2008 19:39 BILUN BILUN Vefsíða Mímis hefur verið óvirk síðast liðnar vikur vegna bilunar sem er nú verið að laga. Við viljum biðja alla gesti síðunnar afsökunnar. Nú verður farið í það að setja myndir inn á síðuna og gera hana flotta og fína.